![]() |
| Óskýr mynd! Lofa betri næst haha |
12 vikur
Fóstrið er á töluverðri hreyfingu í leginu án þess að þú verðir þess vör því það er nóg pláss fyrir hreyfingu í legvatninu án þess að það snerti legið. Fylgjan sendir súrefni og næringu um bláæð naflastrengsins og tekur við úrgangsefnum um slagæðarnar tvær í naflastrengnum. Fóstrið vegur nú um 18 grömm og lengd frá höfði að rófubeini er um 6 sm.
Orð fá því ekki lýst hvað þetta er skrítin tilfingin allt saman, og hún er ekkert nema yndisleg! Þótt þetta hafi allt verið ótrúlega stressandi og óraunverulegt fyrst þá finnst mér eins og það sé allt horfið og ég er ekkert nema spennt.
Veit að það eru haters out there sem eru að að tala um hvað ég sé að hugsa að ætla að gera þetta og hvað ég sé alltof of uung og hvort foreldrar mínir séu að stiðja mig í þessu, hvort ég sé að fara vera ein og blablabla! Vil bara segja að mér er alveg sama hvað ég er gömul, ég get þetta alveg! Foreldrar mínir gætu ekki verið að stiðja mig meira í þessu og nei ég er ekki að fara vera ein! Ég hef pabban, bestu vinkonunar og fjölskyldu :D
Þetta verður ekkert nema yndislegt!

No comments:
Post a Comment