
Oh, ég elska mat! Hvað þá óholltann mat sem er svo ógeðslega góður!
Ég er búin að vera að lyfta og brenna alveg frekar mikið undanfarið, en alls ekki séð góðann árangur, jú ég er búin að bæta á mið vöðva og allt það en það er ekki bara árangurinn sem ég var að leita eftir, fyrir manneskju eins og mig þá pirrar þetta mig svakalega! Ég er svo ótrúlega óþolinmóð og ef hlutirnir gerast ekki strax þá á ég það til að gefast upp, sem er mjög slæmt. Ég er því miður eina af þessum manneskjum sem hugsar, ææji ég get alveg leyft mér Olsen núna því ég fer á eftir í ræktina og tek vel á því, ooog geri þetta svo dag eftir dag! Ég er að fylgjast með henni Birtu Ósk og blogginu hennar og jesús góður hvað ég tek hana til fyrirmyndar! Mig langar svo mikið að geta haft þennan aga á mataræðinu og ég ÆTLA mér að ná að borða hollar og hugsa betur hvað ég er að láta ofan í mig. Því ekki er það bara óhollt og fitandi, heldur hefur áhrif á hvernig þig líður með sjálfan sig, líkamlegt ástand þitt, andlegt og svo ótrúlega mikið sem ég nenni ekki að telja upp Hollt mataræði skiptir sköpum, maður veeeerður að fara átta sig á því. Okei ekki taka þessu eins og ég sé alveg hætt að borða skyndibita eða einhvað svoleiðis haha, ætla bara að minnka það helling.
Hér er bloggið hjá Birtu

eða festu munninn þinn á þér saman eins og ég er... þannig þá bara GETURU ekki borðað!!!
ReplyDeletehaha djók, slæm megrunaraðferð!
kær ástarkveðja, Sandra
baaaaahahahah
DeleteÆi takk æðislega :) Gaman að geta verið hvatning fyrir aðra!
ReplyDelete