Sunday, March 4, 2012

04.03.12

Sætisæti bróðir minn á afmæli í dag :) 6 ára! Mikið á ég stór systkyni, ég gleymi því ekki þegar ég var með pabba og var að segja honum að mamma mín væri ólétt af Hermanni, hann horfði bara á mig steinhissi og sagði...í alvörunni?......Lilja líka! hahah ég átti ekki til orð, sjúpan mín og mamma mín óléttar á sama tíma, svo árið 2006 varð ég heppnust í heimi að eignast tvo nýja bræður, og líka með svona stuttu millibili. Einn 14 feb og svo hinn 4 mars <3


O looord have mercy! Þetta er núna veikindadagur número 5, og mig hefur tekist að smita greyið Maríus, hann er ekki happy! Mikið er ég komin með ógeð af þessu langar ekkert meira en að fara í skólann og vinnuna núna í stað þess að hanga heima og geta ekki gert skít! Herbergið mitt er orðin svínastía og elska Jasmin elskar að liggja í fötunum mínum á gólfinu, en hún er þó hrein því hún fór í bað um daginn, haha það var oof gott hún var svo fyndin!




Á fimmtudaginn reyndi ég að vera ekki veik og kíkti í Gallerý, þrátt fyrir að eiga alls ekki mikið möný þá stóðst ég ekki að kaupa mér einhvað nýtt, það var svooo langt síðan ég keypti mér nýja flík að ég var farin að fá þráhyggju, nojoke! Mig leið illa! hahah slæmt.



Eins og ég bloggaði um í seinasta bloggi um að ég ætlaði að kaupa kool hálsmen næst, well i did and i love it! 


Elska þessa peysu! Hún er svo flott og ég elska elska elska liti. Eina sem mig vantar er einhvað appelsínugult, var einmitt með svoleiðis bol í hendini en gat ekki keypt bæði :( valdi peysuna þvi það er ennþá vetur, en einhvað orange er næst á innkaupalistanum :) Eini gallin við peysuna er að hún varð strax svo víð neðst niðri þar sem hún á að vera svona þröng yfir rassinn, einhver hérna sem veit hvað er hægt að gera til að laga það?

Ég bið allavega til guðs í nótt að ég fari að lagast einhvað og að mig gangi vel í þeim 3 prófum sem ég á að fara í á mrg sem ég btw ekkert búin að getað lært undir, flm!

2 comments:

  1. whut keyptiru halsmenið í gallerí?
    er það þá komið aftur?
    fékk nebbla svona um jólin og það var síðasta þar, hun hefur örugglega pantað meira af þessu.
    eyrunlif.

    ReplyDelete
  2. já ég sá það á dp myndinni þinni að þú átt eins :) en já ég keypti það þar.

    ReplyDelete